Veitingastaðir

patagonia_loga4Patagonia steikhús

er argentískt steikhús.  Það er með nokkra staði í Santa Pola og er einn þeirra í göngufæri frá okkur.  Óhætt er að mæla með þessum stað þarf sem þeir bjóða upp á gott kjöt og ágæta þjónustu.  Verðið hefur farið aðeins upp á við frá því staðurinn opnaði en er en þess virði að fara.  Athuga að þeir setja hvíta dressingu í bökuðu kartöfluna sem er reyndar ágæt, en fyrir suma setja þeir of mikið.  Mæli með Solo Millo.

Saffron er indverskur veitingastaður í 3 míútna bílferð frá okkur.  Óhætt er að segja að þessi staður sé einn af okkar uppáhalds.  Hægt er að borða inná staðnum eða taka með sér.  Í boði eru hefðbundnir indverskir réttir á góðu verði.  Ef mætt er snemma þá eru sérstök tilboð í gangi sem lækka verðið enn frekar.  Heimasíða staðarins er hér.